Velkomin í Davíðshús
Dagsetning
18. mars 2010
07.02.2008 23:56:31 / Gudny

Sér Atlanta - blogg

Við skötuhjúin bjuggum til Atlanta blogg þar sem sagar verða fréttir frá íbúð 19 á Clairmont AVE.

En ég hef áfram fulla trú á Davíðshúsi - Við Sigrún munum örugglega henda inn góðum pistlum inn á milli :)

 

Nýja slóðin er:

www.atlanta.blog.is

Bless í bili

Kv. Guðný


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 17:59:49 / Gudny

Fréttir frá USA

Jæja þá er mín búin að vera viku í Bandaríkjunum og líkar enn rosalega vel :)

Við erum að fara að sækja lyklana núna klukkan 5 !!!! Váá hvað ég hlakka til, er reyndar að setja allt mitt traust á Reyni!! Hann sá íbúðina en ekki ég :) En ég veit hún verður æði!!

Mín fór svo í Target í gær og verslaði og verslaði, hreinlætisvörur, allt á rúmið og plast diska og glös!! Eina sem við munum eiga til að byrja með er risastórt king sise amrískt rúm sem við keyðptum í gær :)

 Svo á hann Reynir minn afmæli á morgun - ég er alveg búin að vera að missa mig í að skipuleggja og vonandi verður þetta frábær dagur. Samt mjög fyndið að reyna að versla hér og finna það sem manni langar - kann ekki alveg a búðirnar strax - en það kemur sennilega fljótt, hehehhe!!!

 

 En góða helgi allir

Guðný

 

p.s. Hringdum í capel-guy í dag og hann vissi ekki hvernær i næstu viku hann gæti komið og tengt internetið og sjónvarpið - þannig að ég verð netlaust eitthvað fram í næstu viku


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 19:56:14 / Gudny

Komin til ATanta

Hæ hæ allir!

Þá erum við Reynir komin til Atlanta :)

Áttum æðislega helgi í Sanford í Florida, vorum á hóteli í  2 nætur með æðislegt útsýni yfir stórt og fallegt vatn. Svo keyrðum við c.a. 700 km. til Atlanta í gær!!

Nú er Reynir í vinnunni og ég heima- fyrsti dagurinn sem amrísk húsmóðir!! Ég er samt með góðan félagsskap, því fyrstu dagana erum við hjá íslenskri fjölskyldu. Svo fáum við íbúðina okkar vonandi á fösudaginn :)

Meira senna

Guðný

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 14:55:09 / Gudny

Þá er mín farin

Já þá er það seinasti dagurinn minn hérna í snjónum

Flugið mitt til Orlando er á morgun :) :)

Búið að vera smá erfitt að kveðja alla!!

Ég mun sakna ykkar allra

En tæknin er nú orðin svo góð í dag að ég mun hitta ykkur reglulega á msn og skype :) :)

 

Ég ætla svo að reyna að vera voða duleg að blogga í Atlanta svo þið getið fylgjst með mér

Yfir og út

Guðný 


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 09:41:24 / Gudny

The dítels

Herru mín er alltaf að breyta um skoðun

Ég ætla norður á þorrablót um helgina :)

Þennig að þeir sem vilja drekka seinasta bjórinn með mér á Íslandi - verða að koma norður!!

 

Kv. Guðný 


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 18:53:48 / Gudny

Kveðjupartý

Heilir og sælir félagar

Nú fer óðum að styttast í USA ferð :)

Ég er að spá í að halda kveðjupartý n.k.laugardag 19 janúar :)

Þið sem þekki mig - er auðvitað boðið

En það er bara einn hængur á.... símanum var stolið af mér í gær :( Þannig að vonandi verð ég komin með nýjan á morgun eða hinn, svo ég geti sent ykkur sms með nánari dítels :)

Ykkar Guðný


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 02:39:33 / Gudny

Smá stjörnuspá

Fékk þessa störnuspá senda á facebook

Passar þetta bara ekki ágætlega við mig !! 

ARIES - The Aggressive

Outgoing. Lovable. Spontaneous. Not one to mess with. Funny. Excellent kisser EXTREMELY adorable. Loves relationships, and family is very important to an aries. Aries are known for being generous and giving. Addictive. Loud. Always has the need to be 'Right'. Aries will argue to prove their point for hours and hours. Aries are some of the most wonderful people in the world.


Guðný


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 22:25:57 / Gudny

Skemmtileg helgi að baki

Já helgin var heldur betur tekin með trompi :)

Það var barnabarna-hittungur á föstudaginn heima hjá mér. Barnabörnin þeirra Sveins og Guðnýjar frá Hjallalandi. Við borðuðum saman og skemmtum okkur svo fram eftir kveldi. Sýni ykkur nokkrar myndir af fallega frændfólki mínu.

100_3327.jpg
100_3319.jpg
100_3289.jpg
100_3281.jpg

 Svo tóku ég, Smári og Sigrún það með trompi annað kvöldið í röð!! Við skelltum okkur á ball með Ný Dönsk á Naska, sem var þvílíkt stuð :) :)

Svo endaði helgin æðislega, kaffi hjá foreldrum Reynis og ég hitti aðeins á  Sindra Snæ.  Svo var mér boðið í yndislegan kvöldverð hjá góðri vinkonu :) :)

 Annars er allt gott að frétta af mér. Hlakka til jólanna og hlakka þvílíkt til að fara norður á föstudaginn og slappa aðeins af :) Svo hlakkar manni auðvitað endalaust til að flytja út, því það styttist óðum í það.

Jólakveðja

Guðný


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 22:25:14 / Gudny

America here I come!!

http://www.hostelineurope.com/worldfact/americafact.php?continent=America

Jæja þá er daman búin að panta sér flug :)

Ég mun flytja til Atlanta 25 janúar!!!!  Skrítin tilfinning að vera búin að ganga frá þessu og vera virkilega að fara!! Ég hlakka ekkert smá til, þetta verður algjör snild.

En því miður kemur Reynir ekki um jólin, flugið var alltof dýrt yfir hátíðirnar. Ég fékk aftur á móti þvílíkt flott tilboð - 33 þús til Orlando :) Reynir ætlar að sækja mig þangað, c.a. 7 kls. akstur!! En það verður bara skemmtilegt road-trip!!

Annars er mín bara komin í töluvert jólaskap, aðeins byrjuð að undirbúa. Annars kvíður mér fyrir að fara að kaupa blessaðar jólagjafirnar, það er svo mikið brjálæði allstaðar. Hef aðeins verið að kíkja í mollin og þau eru bara algjörlega torðfullt af fólki og allir eins og hrægammar að versla sem allra allra mest!! Hvernig er þessi þjóð að verða spyr ég mig nú bara.

En ég ætla að halda veglegt kveðjupartý áður en ég fer - er að spá í laugardaginn 19 janúar, svo þið megið endilega halda kvöldinu frá !!

En jæja þetta eru aðalfréttirnar af mér í bili, er nú ekki mikið að blogga þessa dagana, en ég lofa að vera voða virk út í USA svo þið getið fylgst með okkur skötuhjúunum.

Kær kveðja

Guðný


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 23:06:43 / Gudny

Allir að koma á tónleika

Lúðrasveitin Svanur

Er með sína árlegu jólatónleika laugardaginn 1. desember klukkan 17 í Neskirkju

Allir velkomnir

Kv. Guðný


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 17:29:29 / Gudny

hæ hæ

Var að koma að keflavíkurflugvelli að skulta Reynsa mínum :(

En þarf nú ekki að bíða mjög lengi næst - því hann kemur um jólin :)

Svo er ég bara að fara að panta flug fyrir mig!! En fyrir þá sem það ekki vita er ég að flytja til Atlanta í Georgíu í janúar :) Hlakka ekkert smá til, það verður spennó.

En við Reynir áttum voða kósý viku, ég var í sumarfríi mest allan tíman og gátum við því verið helling saman. Fanfestið mikla var um seinustu helgi og þar djammaði ég með nördum allstaðar úr heiminum!! Mikið stuð. Einnig fór ég í pabbaleik með Reyni og Sindri Snær gisti hjá okkur í 2 nætur. Það var alveg yndislegt, vær og góður strákur. Verð samt að segja að ég skil foreldra í dag mikið betur eftir þessa 2 sólhringa!! Vakna á nóttunni og reyna að finna allskyns ráð til að stöðva barnsgrát!!

Á föstudaginn fórum við svo út að borða á Rauðará mmm.... þvílíkt gott. Ég fékk mér humarsúpu, nautasteik, humar og kaffi og knoíak. Reynir fékk sér villibráðapakka, grafin gæs, heindýrakjög og ís. Alveg frábær matur þarna og þægilegt andrúmsloft.

Annars er það að frétta úr vinnunni að ég tók óvænt við forstöðumanninum og mun sennilega sinna því þar til ég hætti. Smá nervus en hlakka mikið til. Þetta er svo yndslegur vinnustaður og gott starfsfólk sem mun hjálpa mér við þetta allt saman.

Þetta er að frétta í bili  :lol:

Yfir og út

Ykkar Guðný


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 15:35:12 / Gudny

Yndisleg helgi að baki

Kæru lesendur

Af mér er allt gott að frétta :) Skrapp í Kelduhverfið síðustu helgi, sem var yndislegt að vanda. Róleg helgi í faðmi fjölskyldunnar. Kynntist vel stjúpdætrum Sveins bróðurs, þeim Oliviu 9 ára og Örnu 3 ára, algjörar rúsínur. Ég fékk að passa þær á laugardeginum með hinir voru að slátra. Við föndruðum keramik og bökuðum pizzu fyrir fólkið, svaka stuð.

keramik.jpg

baka.jpg

Svo fór ég að sjá nýjasta fjölskyldumeðliminn, Svein Þórarinnsson yngri. Hann er orðin 3 mánuða og mesta krútt í heimi :)

Guðný og Sveinn yngri.jpg

Núna er svo bara verið að vinna á fullu og telja niður dagana þangað til að Reynir kemur, en hann kemur n.k. miðvikudag :) Hann ætlar að stoppa í tæpar 2 vikur og verður nóg að gera hjá okkur. Fan festið hjá CCP fyrri helgina og árshátíð hjá SSR senni helgina :)

Ykkar Guðný


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 20:03:49 / Sigrun

Kæru....

Hmm...ég veit nú eiginlega ekki hvað maður á að halda...ég er nú smá skelkuð. Það eru yfir 100 heimsóknir hérna á síðuna og það virðist engin kvitta, eða láta vita af komu sinni. Frekar óþægilegt. Það er bara orðin spurning um að maður læsi þessu bloggi!!!! En allaveganna væri vel þegið að þeir sem stoppa hérna við, bauli nú aðeins fyrir okkur, bara svo við fáum einhverja hugmynd um hver þið eruð.....ekki að við þurfum að þekkja ykkur!!!

 En mig langaði til að setja inn tvö ljóð eftir Þorstein Guðmundsson snilling með meiru. Njótið vel, lesendur góðir:

I

Eftir að pabbi lamaðist

hlupum við um allan bæ

og settum niður þröskulda.

II

Við veltumst um

í heyinu

allan daginn.

Ég og fiskurinn Vigdís.

 

Allaveganna finnst mér þetta algjör snilld og ég skemmti mér mikið þegar ég les ljóðabókina hans, Barkakýli úr tré. Eitthvað sem allir ættu að eiga :)

 

En bið að heilsa að sinni,

Sigrún.


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 16:50:45 / Sigrun

Sunnudagspæling...

Hef verið að spá í þessu með friðarsúluna. Á þetta ekki að vera tákn um frið og sátt í hjörtum okkar og í öllum heiminum. Þetta er nú dáldið íronískt með þetta friðarljós. Daginn eftir að súlan er tendruð þá splundrast borgarstjórnin. Ég spyr, hver setti ósk um það í óskahylkin þarna við súluna?? Var Dagur Bé eitthvað að sniglast þarna?? ég sá nú skottast í hana Ingibjörgu allaveganna. Like a wish come true fyrir hinn fallna R-lista...sem virðist að vissu leyti endurholgaður í dag.

Las skemmtilegt blogg um þetta um daginn, þar sem fundinum við sjálfstæðismenn sem Björn Ingi átti að mæta í Höfða er líkt við auglýsingu Símans á síðustu kvöldmáltíð Jesús. Og þá var Björn Ingi nefndur Júdas Ingi...skemmtileg pæling..: Við erum hér, hvar ert þú?? og "Júdas" Ingi svaraði þá eins og sönnum svikara sæmdi: er búið að segja gjörið svo vel??...Allaveganna var búið að segja gjörið svo vel á veigunum hjá honum Degi Bé....og þar er ég viss um að Björn Ingi hafir gert góð skil á þeim. Hann kom allaveganna "mettur" og sáttur í fréttatilkynninguna eftir fundinn.

Allt saman samsæri....friðarsúlan tendruð og öll vitum við að hún þarf mikið rafmagn og til að knýja fram það þurfum við orku. Var það ekki mál varðandi orkumál RVK sem varð borgarstjórninni að falli...??

Verð nú að segja að "friðarsúlan", tja er nú ekkert annað en til ófriðar, miðað við byrjunina á þessu öllu saman. En í hjarta mínu vona ég að það verði nú stillt til friðar, í stjórnmálum sem og í öllum heiminum. Var það ekki annars tilgangurinn með þessu, að tákngera og minna okkur á það góða í hvort öðru??

 

Sigrún.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Klukkan